Til sjúklinga
Ef læknir hefur tekið vefjasýni úr þér getur það hafa verið sent til okkar til greiningar. Hér sérðu hvað verður um sýnið og hvað þú greiðir fyrir rannsóknina.

Hvað verður um sýnið?
- 1
Læknirinn tekur sýnið
Sýnið er tekið af lækninum þínum og sent á stofuna.
- 2
Sýnið er greint
Meirihluta sýna er svarað tveimur til þremur dögum eftir að þau berast. Stundum þarf nokkra daga í viðbót.
- 3
Svarið fer til læknisins
Vefjarannsóknarsvarið er sent til þess læknis sem óskaði eftir rannsókninni.
- 4
Krafa í heimabanka
Þegar svar hefur verið sent lækninum er stofnuð innheimtukrafa fyrir þinn hlut.
Hvað greiði ég?
Vefjarannsóknarstofan ehf er rekin á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands (SÍ). Heilbrigðisyfirvöld ákvarða kostnaðarhlutdeild sjúklings í hverju sýni.
Hlutur þinn í hverju sýni
3.716 kr.
Samkvæmt 17. gr. reglugerðar nr. 1495-2025.
Krafan er stofnuð þegar búið er að afgreiða sýnið og svar hefur verið sent lækninum þínum. Hún birtist í heimabankanum þínum.
Úr reglugerðinni
Í 17. grein reglugerðar nr. 1495-2025 um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu segir að fyrir hverja komu til rannsóknar á rannsóknarstofu, og vegna rannsóknar á sýni sem sent er til rannsóknar í rannsóknarstofu, skuli sjúkratryggðir greiða þær upphæðir sem birtast hér að ofan.
Skoða reglugerðina í heild sinni