Verkefni, aðferðir og úrvinnsla
Viðfangsefni stofunnar eru vefjameinafræðirannsóknir en þær felast í skoðun og greiningu vefjasýna annarra en blóðsýna. Sýnin eru tekin af læknum og send á stofuna.
Algengustu sýni
Meltingarfæri
Sýni sem tekin eru við skoðun á meltingarfærum, í maga- og ristilspeglunum.
Aðferðir
Meinafræði sem fræðigrein varð til á 19. öld. Hún er sérgrein innan læknisfræðinnar og gengur út á að lýsa þeim breytingum sem verða í líffærum og vefjum við sjúkdóma og lýsa þeim ferlum sem leiða til þessara breytinga.
Við ýmsa sjúkdóma verða breytingar í vefjum sem hægt er að greina með smásjárskoðun. Sýnin eru meðhöndluð með hátækniaðferðum sem miða að því að varðveita vefinn og gera hann þannig að hægt sé að skoða hann í smásjá.
Lífeindafræðingar
Sjá um skráningu og vinnslu sýna.
Læknar
Hafa allir sérfræðimenntun í meinafræði, greina sýnin og gefa út rannsóknarsvör.

Ferill sýnis á stofunni
Læknir
Sýnataka
Læknir tekur sýnið og sendir það á stofuna í formalíni, í vel lokuðu og merktu íláti, ásamt beiðni.
Úrvinnslutími
Meirihluta sýna er svarað tveimur til þremur dögum eftir að þau berast stofunni.
Í sumum tilvikum þarf að skoða viðbótarsneiðar, gera ýmsar sérlitanir og leita álits fleiri meinafræðinga. Þá getur tekið nokkra daga í viðbót að ganga frá vefjarannsóknarsvarinu.