588 7711

Greining sjúkdóma með smásjárskoðun vefjasýna

Vefjarannsóknarstofan sinnir vefjameinafræðirannsóknum: skoðun og greiningu vefjasýna annarra en blóðsýna. Sýnin eru tekin af læknum og send á stofuna.

Opið virka daga Suðurlandsbraut 4a, 108 Reykjavík

ParaffínkubburÖrþunnar sneiðarLitunSmásjárskoðun

Þú fórst í sýnatöku

Læknirinn þinn tók sýnið og sendi það til okkar. Hér er það greint og svarið fer aftur til hans.

Svar
Sent lækninum sem óskaði eftir rannsókninni. Meirihluta sýna er svarað á tveimur til þremur dögum.
Greiðsla
3.716 kr. almennt, 2.477 kr. fyrir aldraða og öryrkja, börn greiða ekkert. Krafan birtist í heimabanka.
Nánar fyrir sjúklinga

Frá sýni til svars

Lífeindafræðingar sjá um skráningu og vinnslu sýna en læknar, sem allir hafa sérfræðimenntun í meinafræði, greina sýnin og gefa út rannsóknarsvör.

Læknir

Sýnataka

Læknir tekur sýnið og sendir það á stofuna í formalíni, í vel lokuðu og merktu íláti, ásamt beiðni.

Algengustu sýnin

Stofan hefur frá upphafi einkum þjónað sjálfstætt starfandi sérfræðingum á höfuðborgarsvæðinu. Þetta eru þau sýni sem oftast berast stofunni.

Meltingar­færi

Sýni sem tekin eru við skoðun á meltingarfærum, í maga- og ristilspeglunum.

Lífeindafræðingur raðar sýnakassettumStarfsfólk við vinnu á rannsóknarstofunni

Frá 1991

Vefjarannsóknarstofan var sett á stofn árið 1991 og var fyrstu árin til húsa í Glæsibæ. Árið 2011 flutti hún í núverandi húsnæði á Suðurlandsbraut 4a.

Stofan er rekin á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands, er með leyfi heilbrigðisráðherra fyrir rekstri lífsýnasafns og rekstrarleyfi frá landlækni.

Um okkur og starfsfólkið

Suðurlandsbraut 4a

Gengið inn sunnanmegin. 108 Reykjavík.