588 7711

Til lækna

Vefjarannsóknarstofan tekur við vefjasýnum, öðrum en blóðsýnum, sem læknar taka.

Sýnakassettum raðað á rannsóknarstofunni

Frágangur sýna

Sýni þurfa að berast í formalíni, í vel lokuðum ílátum, og beiðni þarf að fylgja. Farðu yfir atriðin til að sjá hvar þau eiga heima.

Rafrænar beiðnir í Sögukerfi

Þeir læknar sem aðgang hafa að Sögukerfi geta sent beiðnir með rafrænum hætti, en útprentuð beiðni þarf alltaf að fylgja sýni.

Rafræn beiðniSvör má einnig senda rafrænt
AnnarsSvör eru send bréflega

Ráðleggingar

Læknar og lífeindafræðingar Vefjarannsóknarstofunnar eru ávallt reiðubúnir til að veita ráðleggingar um meðhöndlun sýna. Hringið í síma 588 7711.

Ábendingar og kvartanir

Læknar stofunnar eru ávallt reiðubúnir til að ræða rannsóknarsvör Vefjarannsóknarstofunnar. Hvert ábendingin á að fara fer eftir því hvað hún varðar.

Til meinafræðingsins sem svaraði sýninu. Eðlilegt er að beina ábendingum eða kvörtunum um einstök svör eða sýni til hans.